Showing posts with label dusty. Show all posts
Showing posts with label dusty. Show all posts

9.6.14

Adam bakes a cake










Adam er ansi liðtækur í eldhúsinu eins og áður hefur komið fram, sítrónulaxinn er í sérstöku uppáhaldi hjá honum enda dásamlegur réttur sem vel er hægt mæla með. Franska súkkulaðikakan er besta kaka í heimi að hans sögn, ég veit nú ekki hvort ég er sammála því en góð er hún.

Frönsk súkkulaðikaka

* 200 gr. súkkulaði
* 200 gr. smjör
* 4 egg
* 3 dl sykur
* 1 dl hveiti
* 50 -100 gr. hakkaðar heslihnetur

Smjör og suðusúkkulaði sett í örbylgjuofn og síðan kælt.
Eggjunum og sykrinum er þeytt vel saman og síðan er blöndunni af smjörinu og suðusúkkulaðinu bætt út í. 
Loks er hveitinu og heslihnetunum bætt smátt og smátt út í.
Fatið er smurt smjöri og hveiti og er kakan síðan bökuð við 180°C í 30-35 mín.

Berið fram með þeyttum rjóma og jarðarberjum

Adam loves to cook and bake, he made this delicious French chocolate cake the other day. He says it is the best cake in the world I'm not sure I agree but, it is really good :-)



French chocolate cake 

* 200 gr. chocolate 
* 200 gr. butter 
* 4 eggs 
* 3 dl sugar 
* 1 dl flour 
* 50 -100 gr. minced hazelnuts 

Butter and chocolate melted in a  microwave and then cooled. 
Eggs and sugar are mixed well and then the mixture of butter and chocolate added. 
Finally, add the flour and hazelnuts in. The cake is baked at 180 ° C for 30-35 min. 
Serve with whipped cream and strawberries


Xo Áróra


23.1.14

Dark walls - The new white?








Ef það er eitthvað eitt inn  núna í innanhússhönnun  þá eru það dökkir veggir Meira að segja ég er með tvo svarta veggi (krítar-málning) og eitt herbergi (baðherbergi) í dökk-gráum lit. Þó svo að mér finnist það alveg ótrúlega smart, hef ég ekki verið tilbúin að taka skrefið til enda og mála allt hjá mér í dökkum lit en kannski seinna :-)  Eru dökkir veggir heima hjá þér ?

Dark walls are so in at the moment! Even I have them in my house (2 chalkboard painted) and a dark grey bathroom. I'm not quite ready to paint the whole house dark (maybe some day). Do you have dark walls in your home ? 


Xx Áróra

images: annagillar.se keltainentalorannalla.blogspot.com doorsexteen.com oliogistudio.blogspot.cm sacramentostreet.com cummingandol.com.au indulgy.com essenziale-hd.com

11.1.14

In the kitchen - French onion soup


Það er búið að vera ömurlegt veður í dag, kuldi, rigning, snjókoma, rok tala nú ekki um myrkrið. Föstudagur í  janúar ... gæti svo sem verið verra. En það kom mér skemmtilega á óvart þegar maðurinn minn sagði mér að hann ætlaði að elda (gerist eiginlega aldrei:-).  Þetta var í fyrsta skiptið sem hann (við) elduðum franska lauksúpu, dásamleg alveg, mæli með því að þú prófir...



4 laukar (þrír   hvítir og einn rauður) skornir í sneiðar og steiktir í potti uppúr 40 gr. af smjöri og slatta af  ólífuolíu við lágan hita. Eftir 20 - 30 mínútur er 1 msk. af sykri stráð yfir og laukurinn brúnaður. 1 msk af balsamic ediki hellt yfir.  2 - 3  smátt skornum hvítlaukrifjum bætt í pottinn, látið malla í nokkrar mínútur. 1 msk. af hveiti stráð yfir og 1 og 1/2 L af vatni hellt yfir ásamt nautakjötskrafti ( vel af honum). Við notuðum bæði oskar nautakraft og fljótandi nautakraft frá Tasy. Látið sjóða við vægan hita í minnst 1 klukkustund. Skerið baguette í sneiðar og smyrjið með smjöri og grillið inní ofni, raðið í súpupottinn eða í eldfastar skálar og rifið Ísbúa eða annan góðan ost yfir. Setjið undir grillið þar til osturinn er bráðnaður! Berið strax fram :-)




It's been so cold and windy today, It rained and snowed not to mention the darkness. A Friday in January... Well it could be worse. But I was still pleasantly surprised when my husband told me that he was going to cook dinner (it almost newer happens:-) It was the first time he (we) made French onion soup, so wonderful,  I recommend you to try it ...




4 onions (three white and one red) cut into slices and fried in a pan with 40 gr. of butter and some olive oil at a low temperature. After 20 - 30 minutes sprinkle 1 tablespoon of sugar over the onion then add 1 tablespoon of balsamic vinegar and a tablespoon of flouer, 1 1/2 L of water and a generous amount of beef bouillon. Let it simmer at a low heat for at least an hour. Cut a  baguette into slices and put some butter on it, put it under the grill in the oven, put the bread in the soup pot (or individual bowls) top with with cheese and put it under the grill until the cheese melts. Serve immediately:-)



Bon appetit
Áróra

7.1.14

Five rooms




Það er alveg kominn tími á að taka baðherbergið í gegn hjá mér, en það verður að bíða betri tíma:-) Þessi baðherbergi hér að ofan finnst mér dásamleg, eitthvað svo rómantísk og falleg.

My bathroom really needs some work, maybe some other time though ;-) I think these bathrooms above are gorgeous, so romantic and beautiful.

Xx Áróra  




stylemepretty.com thepapermulberry.blogspot.cm gracespain.tumblr.com thestingstaketime.com

2.1.14

In the kitchen - Last day of the year










Ég hef haft það fyrir sið á gamlárskvöld að prófa að elda eitthvað sem ég hef ekki eldað áður. Eva og Daníella dóttir hennar komu til okkar og eyddu kvöldinu með okkur :-) 
Í forrétt, gamlárskvöld 2013 hafði ég humar sem ég  steikti (í skelinni) uppúr smjöri og fullt af hvítlauk, saltaði og pipraði og  bar fram með klettasalati og baguette (reyndar hef ég oft eldað humar áður). Það var aðalrétturinn sem var tilraunaréttur, Boeuf Bourguignon! Ég hef ætlað mér að prófa þennan rétt í langan tíma. Reyndar hélt ég að þetta væri aðeins meira mál en reyndist vera, en ég mæli með þessum rétti, dásamlegur alveg! Ég fór eftir uppskrift eftir Juliu Child auðvitað:-) sem hægt er að nálgast hér.Kartöflurnar sem ég gerði með voru alveg ágætar en uppskriftin af þeim er í nýjasta Gestgjafanum. Eftirétturinn gat ekki verið einfaldari, vanilluís með heitri rolo sósu, keypti tilbúinn vanilluís, en í rolosósuna fór einn peli rjómi og 3 pakkar af rolo brædd saman í potti. Gleðilegt ár !


I always try to cook something new on New Years Eve. My fellow blogger Eva and her daughter Daniella came over and spent the evening with us :-)  The starter we had for this New Years Eve 2013 was pan fried lobster (langoustine) with lots of garlic, salt and pepper, served with arugula and baguette.  For main course we had Boeuf Bourguignon! I have been planning to make it for some time now and it was much easier to make then I had thought. I sure can recommend this dish. Of course I followed Julia's child recipe for the Boeuf Bourguignon and served it with potatoes, you'll find the recipe below:-) For dessert we had vanilla ice cream with hot Rolo sauce. Happy New Year !



Xx Áróra

Kartöflur soðnar í smjöri uppskrift úr nýjasta Gestgjafanum

2 - 3 bökunarkartöflur, afhýddar og skornar í 3 cm sneiðar 2 dl smjör 6 dl kjúklingasoð salt ef þarf

Setjið smjörið og kjúklingasðið í pott of látið það bráðna saman. Setjið kartöflurnar úr í og sjóðið þær í blöndunni án pottloks. Látið sjóða niður og kartöflurnar brúnast á hliðinni sem snýr niður. 


26.12.13

Bedroom stories





Það er eitthvað við hvít rúmföt! 

There's something about white bed linen! 


Xx Áróra




jolandapujol.tumblr.com cocolapinedesign.com silvertblende.tumblr.com kikirooz.tumblr.com heltenkelthosnig.blogspot.fr