Showing posts with label Kria jewelry. Show all posts
Showing posts with label Kria jewelry. Show all posts

20.12.13

For me


English below

Hér kemur smá sýnishorn af því sem ég gæfi sjálfri mér í jólagjöf (ef ég hefði unnið í lóttóinu). Helgardvöl á ION hótelinu væri draumur. Kría hálsmen úr gulli - yndisfagurt. Ilmvatn frá Byredo, annaðhvort 1996 (fæðingarár dóttur minnar) eða Seven veils...á þessari stundu er ég eilítið spenntari fyrir 1996. Varalitur frá MAC öðru nafni "Dangerous" - hinn fullkomni rauði varalitur. Yogamotta - af því mig vantar hana svo mikið. Blúndunærföt - Ég er að fara að meika það í þessum naríum (fást í Jör) :-D Apple tv, önnur nauðsynjavara...Gleðileg jól!

This is a selection of what I would get for myself for Christmas (had I won the lottery). A weekend at the ION hotel - what a treat that would be. Kría necklace in gold, so pretty. Byredo perfume either 1996 (the year my daughter was born) or Seven veils, I'm leaning more towards 1996 at the moment. MAC red lipstick Aka: "Dangerous", the perfect matte red lipstick. A yoga mat -  I need one. Lace underwear. I'm imagining what I'd look like wearing those knickers around the house :-D - Apple tv another necessity....Merry Christmas! 


Xx Eva




7.11.13

A little something something


Kría necklace // Kría bracelet // Carré earrings


English below

Ég elska skartið frá Kría jewelry. Sérstaklega fyrstu línuna. Það sem er svo heillandi í mínum augum við þetta skart er að það er bæði hrátt og kvenlegt. Ég á þrjú hálsmen frá Kríu eins og ég hef örugglega sagt frá áður en mig langar svo í eitthvað með þessum fallegu steinum. Reyndar held ég hálskeðjan sem ég er búin að láta mig dreyma um í tvö ár sé ekki til lengur en keðjan hér að ofan er sú sem kemst næst :) Armbandið finnst mér líka ofsalega fallegt. Eyrnalokkarnir frá danska merkinu Carré eru líka æði - Ég er eitthvað voða spennt fyrir túrkís þessa dagana, frekar "eitís" en mér finnst það flott og mér finnst það passa algjörlega bæði með silfri og gulli :)


I love Kria jewelry. Especially the first collection which is both raw and feminine. I am lucky to own three necklaces from that collection and would gladly add a new one! I have been eyeing  a long beaded necklace for about two years - I think it's out of stock now but the one above with the pretty rubies is probably the closest match. The bracelet is also very pretty :) The earrings are by the Danish brand Carré - I'm really into Turquoise right now - A bit eighties but I like it and think it goes well with both silver and gold :)

Xx Eva