Showing posts with label I tried. Show all posts
Showing posts with label I tried. Show all posts

12.6.13

I tried - Quitting wheat...


I like to try new things from time to time. Nothing extra ordinary just simple stuff like hair extensions (more later) and the Clarisonic cleansing device, which I LOVE. I use it 3-5 times a week in the bath/shower and my skin has never felt cleaner. I can recommend that one. 
- One other thing I've tried lately, is going off wheat. Completely (almost). We are talking no bread, no pizza, no pasta and no cake (a-hem). I have been reading horror stories about wheat and thought I would give it a try, just for fun, to check if I would notice a difference. I did. Quitting wheat came with serious side effects. I have been craving PEANUT BUTTER every second  of every day for 4 weeks. I never eat peanut butter, I never even think about peanut butter. Until now. I can not wait to get home from work to scoop it straight out of the jar and into my mouth. I even bought the healthier version, organic with no added sugar which doesn't even taste that great. Ate that to. I posted on this blog a recipe for peanut butter smoothie! I'm telling you, for me going of wheat is like being PREGNANT. Of course I have put on weight binging like I have been and that was not what I was expecting. Today is my last day wheat free - Tomorrow I will eat bread again with a smile on my face :)

Mér finnst gaman að prófa nýja hluti. Ekkert stórkostlegt, bara einfalda hluti eins og til dæmis hárlengingar (meira um það síðar) og Clarisonic hreinsiburstann, sem er ÆÐI. Ég nota hann 3-5 sinnum í viku í sturtunni/baðinu og húðin á mér hefur aldrei verið jafn hrein. Ég get algjörlega mælt með þessum bursta.
- Annað sem ég hef verið að prófa undanfarið og það er að hætta alveg (nánast) að borða hveiti. Ég hef ekki borðað neitt brauð, engar pizzur eða pasta og nánast engar kökur (!) Ég hef verið að lesa svo slæma hluti um hveiti að ég ákvað að prófa að hætta í gamni til að athuga hvort ég myndi finna einhvern mun. Ég fann svo sannarlega mun en ekki eins og ég átti von á. Mig er búið að langa í HNETUSMJÖR allan daginn, alla daga síðan ég hætti að borða hveiti fyrir fjórum vikum. Ég hef aldrei á ævinni borðað mikið af hnetusmjöri, mér hefur varla dottið hnetusmjör í hug en nú hugsa ég ekki um annað og get ekki beðið eftir að komast heim úr vinnunni á daginn svo ég geti farið að skófla í mig hnetusmjöri, beint upp úr dollunni!  Ég keypti meira að segja hollustu útgáfuna af hnetusmjöri, lífrænt, án viðbætts sykurs sem er eiginlega hryllilega vont á bragðið... en ég át það samt! Ég setti færslu hérna á bloggið með uppskrift af hnetusmjörs þeytingi! Mér líður eins og ég sé ólétt enda hef ég bætt aðeins utan á mig. Það var ekki alveg það sem ég átti von á að myndi gerast þegar ég hætti að borða hveiti skal ég segja ykkur svo ég læt þetta vera síðasta daginn í þessu vitleysis bindindi og mun borða brauð á morgun með bros á vör :)

Xx Eva

Image: www.hayleywhitn.3owl.com

9.5.13

I tried - Going to bed without make-up...

Untitled #5

Since I've been going to the gym 4-7 times a week my waterproof mascara has been my best friend. However it's a pain to take off and I really, really want to minimize the time that I stay in the bathroom removing make-up and cleansing my face - The longer it takes the chance is bigger that I go to bed with make-up on and leave it there until I have no choice the next morning. I have bought a few make-up removers for waterproof mascara but they are either expensive or not doing the job - or both. So I have turned to cold pressed coconut oil. The best make-up remover ever. I slather it on my eyes, rub it in and remove the make up with a wet cotton pad. It does not sting or burn, it just feels great and removes every trace of make up. I guess most of you have heard of this genius (!) advice before - so I will include a little twist. I have stopped using eye cream....! I have been using all kinds of eye creams for years because I tend to have very puffy eyes especially when travelling, so on my last trip I brought the coconut oil with me and there was not a puff in sight. I love this! Another cheap product that I'm loving is Cetaphil gentle skin cleanser. I put a little drop on the clarisonic brush and it feels great against my skin. Added bonus, these products are available at the drugstore or supermarket (online check f.ex. here)!
-
Eftir að ég fór að fara á æfingar 4-7 sinnum í viku hef ég þurft að fjárfesta í vatnsheldum maskara sem er snilld en það óþolandi að taka hann af. Ég nenni ekki að vera lengi inni á baðherbergi á kvöldin og þegar það er eitthvað svona vesen er auðveldara að fara bara að sofa með allt framan í sér og ráðast í þetta morguninn eftir þegar maður hefur svosem ekkert val hvort sem er. Ég er búin að kaupa margar mismunandi gerðir dýrar og ódýrar til að fjarlækja augnfarða en hef ekki fundið neitt sem mér líkar nógu vel. Ég prófaði því að nota kaldpressaða kókosolíu sem hefur reynst það besta hingað til! Ég nudda henni á augun og þurrka með votri bómullarskífu. Ég finn ekki fyrir neinum sviða undan olíunni og þetta er eitthvað svo auðvelt og þægilegt. Líklega hafið þið heyrt um þetta ráð áður þar sem kókosolía hefur verið mikið í umræðunni  - svo ég er með smá aukavinning hérna. Ég er hætt að nota augnkrem...! Ég hef notað alls konar augnkrem í mörg ár, aðallega af því ég er oft bólgin í kringum augun, sérstaklega á ferðalögum. Ég tók kókosolíuna með mér í síðustu ferð og varð ekkert bólgin, hvorki eftir flug né lítinn svefn. Önnur svona ódýr snilld er Cetaphil "gentle skin cleanser" sem ég set á clarisonic burstann til að þrífa á mér andlitið. Rosalega mjúkt og þægilegt hreinsiefni. Það besta við þetta er að þetta fæst í næstu matvöruverslun! (Cetaphil fæst í Kosti).

Xx Eva