Showing posts with label summer. Show all posts
Showing posts with label summer. Show all posts

6.6.14

In the kitchen - Roasted chicken with watermelon salad and basil mayonnaise


Ég held að það sé óhætt að segja að sumarið sé komið!  Ég er búin að vera svo löt að elda síðustu vikurnar en er að reyna taka mig á, ætti ekki að vera erfitt þar sem aðal grilltíminn er að byrja :-) Við grilluðum reyndar ekki í gær en ofnsteiktur kjúklingur varð fyrir valinu -balsamedik og hunangs marineringin klikkar ekki. Ég gerði majónes í fyrsta skipti og örugglega ekki það síðasta, vatnsmelónusalatið passaði fullkomnlega með, léttur og sumarlegur matur :-)


Steiktur balsamedik- og hunangsmareineraður kjúklingur 

* 1 msk. hunang
* 2 dl ólífuolía
* 1 dl balsamedik
* 1 1/2 tsk timjan
* 3 hvílauksrif fínsöxuð

* Blandið öllu vel saman í skál
Berið á kjúklinginn, saltið og piprið vel

* Steikið kjúklinginn í ofni við 170° í 1 og 1/2 tíma

* Vatnsmelónusalat

* 1/2 vatnsmelóna skorin i bita
* 1/2 rauðlaukur skorinn í þunnar sneiðar
* Fetaostur (ekki nota olíuna)
* 2 lúkur af klettasalati

* Blandið öllu saman á disk, saltið og piprið

* Basilmajónes 

* 2 eggjarauður
* 1 msk. sítrónusafi
* 1 msk. dijon - sinnep
* 2 dl ólífuolía
* salt
* pipar
* Væn lúka af fersku basil

* Allt hráefnið á að vera við stofuhita, hrærið saman eggjarauðum og dijonsinnepinu
með þeytara, bætið olíunni smátt og smátt saman við. Það þarf alveg að hræra í fimm mínútur. Bætið sítrónusafanum saman við, saltið og piprið og að lokum, saxið basil smátt og hrærið varlega saman.

I think it is safe to say that summer is here! I've been so lazy in the kitchen the past few weeks but I'm trying to change that which should not be so difficult since I plan to use the barbecue often this summer .
Yesterday we had roasted chicken and I made mayonnaise for the first time, I'm sure it wont be the last, and the watermelon salad was was delicious.

Balsamic vinegar and honey marinated roasted chicken


* 1 tbsp. honey 
* 2 dl olive oil
* 1 dl balsamic vinegar 
* 1 1/2 tsp thyme 
* 3 garlic cloves, finely chopped 



* Mix all well together in a bowl 
rub it into the chicken then salt and pepper

* Fry the chicken in an oven at 170 ° for 1 1/2 hours


* Watermelon salad


* 1/2 water melon cut into chunks 
* 1/2 red onion cut into thin slices 
* Feta cheese (no oil) 
* 2 two handfuls of arugula 
* Mix everything together on a plate and add salt and pepper 


* Basil-mayonnaise 

* 2 egg yolks 
* 1 tbsp. lemon juice 
* 1 tbsp. Dijon - mustard 
* 2 dl olive 
* salt 
* pepper 
* good handful or two of fresh basil 

* Everything  must be at room temperature, stir together the egg yolks and Dijon - mustard
 add oil slowly. It requires quite a stir for five minutes. Add the lemon juice salt and pepper  and finally the finely chopped basil and stir gently.



Góða helgi, Áróra



26.8.13

Going on vacation alone


Ég fór í viku sólarlandaferð í sumar, nánar tiltekið til Spánar. Alein. Fólk horfir á mig með undrunaraugum og trúir mér ekki þegar ég segi frá þessu. Það heldur að þegar ég segi "alein", þá sé ég að meina eitthvað annað. Ástæðan fyrir því að ég fór á sólarströnd var til að fá algjöra hvíld. Ég fór ein af því mig langaði til þess. Ég var ekki hrædd. Það var fullt af fólki í kringum mig allan tímann, aðallega smábörn og eldri borgarar sem gerðu ekki flugu mein. Ég var ekki einmana. Eins og ég segi þá var fullt af fólki í kringum mig, en það góða var að ég þurfti ekki að sinna því :) Mér leiddist ekki. Ég hafði nóg að gera við að slaka á. Þetta var algjörlega frábært frí. Ég svaf út, fékk mér morgunmat á hótelinu og tók mér góðan tíma. Lét steikja handa mér egg og beikon, borðaði brauð og ferska ávexti og drakk cava með. Eftir morgunmatinn rölti ég út í hótelgarðinn og tók þátt í líkamsrækt dagsins, sem var annaðhvort zumba eða eróbik, með hinum hótelgestunum. Eftir smá puð skellti ég mér í bikiní og fór með bækurnar mínar og sólarvörn númer 50 að sundlaugarbakkanum, fann mér bekk á góðum stað og lá þar og dormaði í nokkra tíma. Meðan sólin var sem hæst á lofti fór ég í göngutúra meðfram ströndinni, skoðaði í búðir eða verslaði eitthvað létt í matinn. Svo lagðist ég bara aftur á bekkinn annaðhvort við sundlaugina eða á ströndinni, sleikti sólina, las og skoðaði blöð þar til komið var kvöld. Þá var kominn tími á að sjæna sig aðeins fyrir kvöldmatinn. Ég sat lengi og borðaði alls kyns fisk, sjávarrétti, ferskt grænmeti, osta og ávexti og fylgdist með dramatískum og háværum spænskum stórfjölskyldum. Þetta (ekkert) gerði ég í sjö daga og kom úthvíld og endurnærð heim til mín. Ég get ekki annað en mælt með þessu og vona að ég hafi tækifæri til að gera þetta aftur. - Helst á hverju ári :)


I went on a vacation this summer to the South of Spain. By myself. People look at me funny when I tell them this, because when I say that I went there "alone" they think that means something else. The reason that I picked a beach vacation was to get a good rest. I went by myself because I wanted to. I wasn't afraid. There were plenty of people around me, most of them children and senior citizens who are quite harmless. I wasn't lonely, as I said there were plenty of people around me but I didn't have to take care of any of them :) I wasn't bored. I was busy relaxing. I slept in, had breakfast at the hotel, where I took my time to eat a big meal including bacon and eggs and always a glass of cava. After breakfast I went out to the hotel garden and did the work-out of the day (which was either zumba or aerobics) with other hotel guests. After that I changed into a bikini, picked up my books and sunscreen and lay in the sun for a few hours, dipping in the pool when too hot. During the hottest time of the day I took a stroll on the beach or did some shopping. I lay in the sun again til early evening when it was time to change and go to dinner. I sat for a long time, eating a lot of fresh seafood, locally grown vegetables, fruit and cheese and while at it I did some people watching - Spanish families are loud, passionate and dramatic with adorable kids :) This (nothing) is what I did for seven days. I came home relaxed, refreshed and tanned. I hope I 'll have the chance to do this again someday. 
- In fact I'd want to do this every year :) 

Xx Eva

Image: fancy.com

25.7.13

In the kitchen -


Loksins lét sólin sjá sigvið notuðum tækifærið og borðuðum úti í garði:) 
Við höfðum marineraða löngu (úr Melabúðinni), grillað hvítlauksbrauð og pönnusteiktan aspas, en aspas er í miklu uppáhaldi á mínu heimili.  

 Pönnusteiktur ferskur aspas:


Brjótið neðsta partinn af stönglinum 

Bræðið smjör á pönnu (50 gr. minnst). Ég var með 2 pakka af aspas 
Steikið aspasinn upp úr smjörinu í nokkrar mínútur 
Saltið og piprið vel. Stráið sítrónuberki yfir (sirka 1/4 af sítrónu)
Þegar aspasinn er tilbúinn, rífið þá Parmesanost yfir 

Finally the sun came out! We used the opportunity to dine in the garden:) We had marinated fish, grilled garlic bread and pan fried asparagus. 


Pan fried asparagus:


Remove the wooden ends of the asparagus spears

Melt butter in a pan
Fry the asparagus in the pan for a few minutes 
Add salt and pepper and some zest of a lemon
When the asparagus is ready top it with Parmesan cheese 

Verði ykkur að góðu
Xx Áróra





All images copyright  Dusty



25.4.13

Bold and brave

Bold and brave

Vagabond strappy heels


I have to get my hands on these chunky babes before summer. At least try them on. If they are easy to walk in I'm getting both the black and the white. Can't beleive I'm liking the chunky 90's shoe again but I guess I am. I might be under the influence of this one and this one.

Ég verð að komast yfir þessa þykkbotna sandala fyrir sumarið. Allavega máta. Ef það er gott að ganga í þeim þá kaupi ég báða liti. Ég trúi nú varla að ég sé að komast á 90's skótímabilið aftur (!) en það bendir allt í þá átt. Kannski eru þessi og þessi sem ég heimsæki við og við að hafa svona mikil áhrif á mig? Gleðilegt sumar :)

Xx Eva