18.2.14

Bohemian xoxo




Vá hvað ég þarf að komast í H&M í byrjun mars þegar þessi æðislega vor/sumarlína kemur í búðir! Beltið, háu rússkinsstígvélin, ljósblái dúskakjóllinn og hvíta pilsið eru á óskalistanum - í þessari röð. Það er bóhemastíll yfir í þessu og  ég get hef aldrei almennilega getað losað mig við hann þó tískan undanfarið hafi verið ansi mínímalísk. Fíla þetta í botn og verð í þessu öllu í einu! 

I have to visit an H&M shop somewhere (they don't exist in Iceland) when this spring/summer collection comes out in March. The belt, over the knee boots, the blue tassel dress and the white mini skirt are already on my wish list, in that order. Even though fashion lately has been all about clean lines and minimalism I've never been able to shake of my inner gypsy, so this bohemian inspired collection is quite the treat for me.

Xx Eva

images: josieloves.de, glamour.nl



Wall rug




Ég keypti mér veggteppi í gær (reyndar mottu sem ég ætla nota sem veggteppi). Ég er búin að vera breyta neðri hæðinni hjá mér, skipta um svefnherbergi, mála... Ég hef aldrei þorað að hengja upp myndir yfir rúm ef það skyldi koma jarðskjálfti eða eitthvað álíka, það er ekki gott að fá myndaramma á hausinn á sér :-(  svo ég gæti ekki verið ánægðari með veggteppið (mottuna) sem ég keypti í Ilvu í gær.


Xx Áróra

I bought wall rug yesterday (actually floor rug (mat) that I plan to use as a wall rug). I have been renovating the ground floor of my house. Moving around,  painting the walls ... I have never had the courage to hang picture frame over my bed (or any bed if that matters) in case of an earthquake or something similar. So I couldn't be happier with my new wall rug that I bought in Ilva yesterday:-)

Xx Áróra

12.2.14

Stan for your man


Stan Smith frá adidas eru komnir aftur eftir smá hlé. Þessir klassísku hvítu leðurskór komu fyrst fram 1973 og eru enn sjúklega flottir. Reyndar kunni ég ekki gott að meta 1994 þegar einn vinur minn fékk svona skó í afmælisgjöf - þetta var á þeim tíma þegar maður var alveg að detta í Buffalo og ég misskildi Stan Smith eitthvað, fannst þeir ekki nógu töff. En ég hef þroskast mikið síðan ;) Ég veit ekki hvaða stælar það eru en það er frekar erfitt að finna þá í litlum stærðum (38 og niður úr) og ég er ekki bjartsýn á að þeir komi hingað til lands þannig að ég fæ mér líklega bara Nike Airforce 1 sem fást í Nikeverslun í minni stærð. Stan Smith fást í adidasbúðinni í Kringlunni og já þeir passa við nánast allt. Strákar...þessir skór og brún taska, það er málið ;)

Yes Stan Smith is back. The classic white tennis shoe from adidas that took a couple of years of is now available again. These shoes were first produced in 1973 and they are still as cool as ever. A friend of mine got these for his birthday back in 1994 when in fact I was on the verge of buying a pair of buffalo wedges and didn't quite understand the genius simplicity of the white tennis shoe. I have grown up since. I cannot understand why it is so hard to find them in smaller sizes (EU 38 and down) here in Iceland so I'll "settle" for Nike Air Force 1, that I can easily get in my size. So guys, you go get these... and a brown bag to go with them ;)

Xx Eva

Images: sodandy.com, upscalehype.com, sneakernews.com, tumblr.com


Pick of the day

The scarf


Æðislegur klútur/sjal úr fíngerðu ullarefni frá Malene Birger , fæst  í Companys í Kringlunni


A rad Keffiyeh inspired, lightweight  wool scarf from Danish designer Malene Birger


Xx Eva


Picture of Freja Beha wearing a Keffiyeh scarf: casualchicfreak.blogspot.com


10.2.14

Nice things



Myndin af borðstofunni er heima hjá Sarah Sheikh sem er töskuhönnuður, býr í Kaupmannahöfn og hannar undir merkinu "Savannah Wild". Mér finnst þessi borðstofa mjög töff en jafnframt kósý og persónuleg. Það virðist alltaf koma vel út að vera með hvítlakkað trégólf (allavega á myndum) en ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að halda svona gólfi hreinu - Gengi ekki heima hjá mér! Hér má sjá fleiri myndir af þessu fallega heimili.

Skrautboltar/Ikea // Persnesk motta/Ikea // Kertastjaki/Ilva


The photo of the dining room above is from handbag designer Sarah Sheikh's Copenhagen home. I think it's a very cool yet personal dining room. It always looks so good with white wooden floors (at least in pictures) but I cannot imagine how it is to clean them - this would definitely not work at my house! Sarah Sheikh designs handbags under the name "Savannah Wild" and you can check out more pictures from her home here.

Honeycomb paper decorations/Ikea // Persian rug/Ikea // Candlestick/Ilva 

Xx Eva

Image: cover.dk

5.2.14

In the kitchen - Girls night in


Það var komið að mér að halda saumaklúbb og eftir mikla umhugsun ákvað ég að hafa franskt þema (elska allt franskt þessa dagana). Ég bauð uppá tvær gerðir af bökum, bæði tómata og sveppa ásamt salati, pönnusteiktum aspas, baguette, ostum  og auðvitað var
drukkið rauðvín með:-)  Eftirrétturinn að þessu sinni voru rósapipar-pavlovur með vanillurjóma, basil og jarðaberjum, meira af þeim seinna. Þetta heppnaðist bara nokkuð vel þó ég segi sjálf frá:-)  

* Salatið samanstóð af klettasalati, rauðlauk, granatepli, bláum vínberjum, og fetaosti. Ég hellti  örlítið af olíunni af fetaostinum yfir salatið, smávegis af balsamic ediki hér og þar yfir ásamt mable sýrópi, saltaði með maldon salti og pipraði með svörtum pipar.


* Sveppabökur - Ég keypti tilbúið smjördeig smurði það með sýrðum rjóma , steikti sveppi á pönnu uppúr smjöri hvítlauk og salti og pipar. Setti sveppina á smjördeigið og vel af Parmesan yfir - Bakað í ofni við 180° í sirka 20 minútur.


* Pönnusteiktur aspas sjá hér


* Tómatabaka - Tilbúið smjördeig -  sýrðum rjóma og Dijon sinnepi blandað saman og smurt á deigið. Raðið tómatsneiðum sem hafa verið bakaðar í ofni í 30 - 50 mín á 120°c (hellið ólífuolíu yfir tómatana kryddið með timjan, salti og pipar ferkum hvítlauk og vel af flórsykri áður en sett inn í ofninn) raðið líka ferskum mozzarella yfir deigið - bakið við 180°c í sirka 20 mínútur. Setjið ferskt basil hér og þar á bökuna um leið og hún kemur út úr ofninum.  Þessi er algjört æði mæli hiklaust með henni !!


Last weekend I had a dinner party for my girlfriends.I decided to have a French theme (love everything French these days)  So on the menu were,a tomato tart , a mushroom tart, pan fried asparagus, salad and for dessert I made individual pavlovas with rose peppercorns, vanilla-cream, strawberries and fresh basil. The food was a great success even if I say so myself:-)

* Tomato tart - Ready-made puff pastry, defrosted. Tomato slices (bake them in the oven for 30 - 50 minutes on 120°c and drizzle with olive oil). Add thyme, garlic, salt, pepper and icing sugar) Mix Dijon and sour cream  and put it on the pastry, Place the tomatoes and moz

zarella on the pastry and bake in the oven at 180°c for  about  20 minutes. Remove from the oven and top with fresh basil leaves. This tart is so good I recommend that you try it !!

* Pan fried asparagus here 


*  Mushroom tart - Ready- made puff pastry, defrosted - put the sour cream on the pastry - Pan fry the mushrooms  in butter garlic, salt and pepper and let it cool a little and then put it on the pastry. Top it with Parmesan. Bake the tart in the oven on 180°c for 20 minutes. 




Bon appetit


Xx Áróra