30.8.14

Her style - Lucinda Chambers







Lucinda Chambers stílisti er algjör mega töffari. Bláir grænir og brúnir litir eru í uppáhaldi hjá henni og hún klæðist oftar en ekki fötum frá Marni. Hún er meistari smáatriðanna...sokkar við hælaskó, fallegir klútar, áberandi belti, töskur og stórir eyrnalokkar setja punktinn yfir i-ið.  

Stylist Lucinda Chambers is one good dresser. Hues of blues, greens and browns are a favorite and Marni is her go to label. She is a master of details.. socks with pumps, pretty scarves, pop-out belts, bags and big ear-rings complete her look. 

xxx Eva



Images: maydele.com, theguardian.co.uk, kellysboudoir.com, annebennecker.wordpress.com

23.8.14

Bathroom details





Eins og ég er hrifin af nýtísku baðherbergjum þá heilla þessi rómantísku gamaldags mig líka. Þau baðherbergi sem ég hef komið í  eru yfirleitt mjög einföld - ekki mikið af myndum á veggjum eða blóm í vösum,  væri til í að sjá meira af því :-) 

Usually I prefer modern -bathrooms but there is something so charming about the romantic  old-fashioned ones. The bathrooms i have come across are usually very plain, no pictures on the walls or flowers in vases. I would love to see more of that :-) 


Xx, Áróra



images/ stylemepretty.com  smallgirblogging.tumblr.com frolic-blog.com roomed.nl

21.8.14

Hair inspiration





Þessar eru nú alltaf frekar flottar og Flashdance og 9 og hálf vika eru auðvitað klassískar myndir og tískan í þeim hefur verið heilmikill innblástur í gegnum tíðina. Hárið á bæði Kim og Jennifer er ótrúlega flott - man einhver þegar maður var alltaf láta setja í sig permanent? Anja Rubik er eins og blanda af þeim báðum í þýska Vogue.

These ladies are always gorgeous and of course both Flashdance and 9 and 1/2 weeks are classic movies and endless fashion inspiration sources. I really love both Kim's and Jennifer's hair styles - does anyone remember when a perm was the hottest thing? :) Anja Rubik's hair in German Vogue is like a tribute to both of them.

xxx Eva

16.8.14

Pick of the day



Flottur kjóll úr viskós úr nýju Jewels línunni frá Indiska. Fæst í Indiska Kringlunni.

Pretty viscose dress from the new Indiska Jewels collection

xxx Eva



Image: Filippa Berg wearing Indiska Aurora dress / Indiska Sweden Facebook page



13.8.14

Navajo, Ikat and Aztec patterns










Navajo, Ikat og Azteka mynstraðar mottur, teppi eða púðar geta lífgað upp á hvaða herbergi sem er og gert það heimilislegra. Brenndir litir eins og brúnn og rústrauður hafa ekki sést lengi en eru nú aðeins að koma aftur. Ég hef aðeins verið að spá í að fá mér persneska mottu í stofuna en það getur alveg eins verið að ég fái mér mottu með indjánamynstri í staðinn.

Navajo, Ikat and Aztec patterned rugs and pillows can make any room more cozy. Burnt colors such as brown and orange have been coming back lately and while I have been eyeing some Persian rugs for my living room I might start looking for some Aztec patterns instead. 

xxx Eva

Images: stylemepretty.com, indoorsoutdoors.tumblr.com, remainsimple.us, www.buknola.com, blog.uncovet.com, pinterest

12.8.14

In the garden







Við notuðum tækifærið og borðuðum úti í kvöld, enda einn besti dagur sumarsins hér í Reykjavík. Það kom að því! Matseðilinn var ofur einfaldur, reyktar svínakótelettur með bökuðum kartöflum, grænu salati og  timjan basilsósu. Adam sá um að leggja á borð, setja blóm í vasa og gera fínt. Eiginmaðurinn sá um að grilla. Ég  útbjó salatið og sósuna. Þetta var ofur einfalt en bragðgott með eindæmum. Það er ekki á hverjum degi sem við borðum úti í garð i:-)


We used the opportunity to eat outside this evening, as it is one of the best days of summer here in Reykjavik, finally! The menu was quite simple really, smoked pork chops with baked potatoes, green salad and time-basil-sauce. Adam set the table and was in charge of that making everything look nice. My husband grilled the meat, while I made the salad and the sauce. It was super simple but very tasty. It is not everyday that we can dine in the garden :-)


Xx, Áróra

9.8.14

In the kitchen - Mustard roasted broccoli pâté with leeks & lemon


Þetta spergilkáls og blaðlaukspaté er alveg sjúklega gott. Alveg tilvalið ofan á hrökkbrauð eða eitthvað annað gott brauð. Þetta myndi sóma sér vel á hvaða veisluborði sem er :-) 

Spergilkáls og blaðlaukspaté

1 spergilkálshaus skorinn í bita 
1 blaðlaukur, gróft saxaður
 Ólífuolía
1 og 1/2 msk gróft sinnep
Tímían, má vera ferskt eða þurkað
Salt + pipar
1 msk sítrónubörkur
Safi úr 1/2 sítrónu 
1/2 bolli rifinn parmesan
1/2 bolli ólífuolíu + smávegis til að hella yfir þegar þetta er tilbúið
Gott sjávar-salt, t.d.  Maldon

Aðferð

Blandið saman í skál: Skvettu af ólífuolíu, sinnepi, tímían, salti og pipar. Veltið spergilkálinu og blaðlauknum upp úr blöndunni. Setjið í klædda ofnskúffu og steikið í ofni í 20-25 mínútur við 180°. Setjið steikta grænmetið í blandara eða matvinnsluvél og bætið sítrónuberki, sítrónusafa, parmesan og ólífuolíu út í og gróf maukið. Setjið í skál eða krukku og hellið smávegis ólífuolíu yfir. Kælið í nokkra tíma. 

This mustard roasted broccoli paté with leeks and lemon is so good. You can put it on crisp bread or any other good bread.

Mustard roasted broccoli pâté with leeks & lemon

Broccoli head cut into pieces 
1 leek, roughly  chopped 
 Olive oil 
1 and 1/2 tablespoon whole grain mustard 
Thyme, can be fresh or dried 
Salt + pepper 
1 tbsp lemon zest
Juice of half a lemon 
1/2 cup grated Parmesan 
1/2 cup olive oil + a little to pour over when it's done
Good sea salt

Method

Mix together in a bowl: Splash of olive oil, mustard, thyme, salt and pepper. Rub it over the broccoli and leek. Put it in a lined oven tray and cook in the oven for 20-25 minutes at 180°. Put the fried vegetables in a blender or food processor and add the lemon, lemon juice, Parmesan and olive oil and mix it. Place in a bowl or jar and pour a little olive oil over. Cool for several hours.


Xx, Áróra



8.8.14

Pick of the day




Samantha Traina kann að klæða sig ekki síður en systur hennar. Það má nú alveg taka hana sér til fyrirmyndar og skella sér á svona svipaðan tvíhnepptan, hvítan jakka.

Jakki frá Lindex, fæst í Smáralindinni

Samantha Traina, like her sisters,  knows how to dress. Be inspired by her clean, slick look and get a similar, white double-breasted jacket. 

Jacket by Lindex

xxx Eva


Image: stockholmstreetstyle.com, Samantha Traina is wearing a Proenza Schouler jacket.




7.8.14

The longest hair







From top: Laura Bailey, Lisa Bonet, Molly Guy, Caroline de Maigret, Elle Mcphersson

Yfirleitt eru það ungar stúlkur sem eru með 'síðasta hárið' en ekki konur á fertugs eða fimmtugsaldri. Mér finnst fátt smartara en konur með fallegt sítt hár. Mamma mín er komin yfir sextugt og er með sítt grátt hár og það er ótrúlega flott. Dóttir mín er með hár niður á rass og það má ekki klippa sentímeter af því. Það sem ég væri til í svona hár :)

Usually you see younger girls sporting the extra long mane, not ladies in their forties or fifties. I love when women let their hair grow or keep their long locks even though they are teens no more. My mother is in her sixties and she has beautiful long, grey hair. My eighteen year old daughter has really long hair and scissors come nowhere near it. I would love to have long hair like that :)


xxx Eva

Images: vogue.co.uk,  mommynoire.com, thenewpotato.com,  stylebykling, whowhatwear.com



6.8.14

Krás - street market






Síðasliðna tvo laugardaga hefur Krás - götumarkaður verið í Fógetagarðinum (við hliðina á Austuvelli) og  auðvitað höfum við ekki látið okkur vanta. Útlandastemmningin svífur þar yfir vötnum.... Krás býður upp á fyrsta flokks street-food, margir af okkar vinsælustu veitingastöðum eru með bás þarna. Aðal vandamálið er að velja hvað maður á að fá sér, hægeldað lambakjöt með jógúrtsósu og harissa í pítubrauði, spicy New Orleans krabbaborgara, dirty pork sandwich, djúpsteiktar hrísgrjónabollur....  Ef þú hefur látið þetta fram hjá þér fara eru enn þrír laugardagar eftir. Sjáumst!



The past two Saturdays we have been at  Krás in downtown Reykjavik . Krás is a street market that offers first-class street food, many of Reykjavik's most popular restaurants have a booth there. The only problem is choosing what to get, slow cooked lamb with yogurt sauce and harissa in pita bread, spicy New Orleans crab-burgers, dirty pork sandwich, fried rice balls .... If you have not been there yet, do not worry, you can still catch it, Krás will be there the next three Saturdays. 



Xx, Áróra



5.8.14

Spotting - Persian pickles







Tóbaksklútar hafa sést aðeins að undanförnu. Ég man á  níunda áratugnum (síðustu aldar), þegar ég bjó í Danmörku, átti ég bæði rauðan og fjólubláan og  notaði sem hálsklúta. Þegar ég fór fyrst að sjá þá aftur á tískubloggum fannst mér þeir annaðhvort aðeins of  "pin-up" eða aðeins of  "gengjalegir" en það er líklega bara aldurinn ;) Dóttir mín á rauðan  sem hún bindur stundum um höfuðuðið og hún gæti ekki verið sætari. Ég er ekki alveg að sjá mig ganga með þetta ... kannski ég skelli mér á einn til að vera í við poncho-ið við opna arineldinn ;) Svona klútar fást meðal annars í Spútnik Laugavegi/Kringlunni í öllum regnbogans litum.

Bandanas have been around for some time now. I remember them from the eighties, when I lived in Denmark, I had a red one and a purple one and wore them around my neck. When I first started seeing them again on fashion blogs I immediately thought "gangsta" when worn around the neck or "pin-up" when tied around the head. My daughter has a red one that she ties around her head and she couldn't look any cuter. For me though I think this ship has sailed... maybe I could wear one with a poncho around a camp fire? ;)


xxx Eva

Images: http://mpdrolet.tumblr.com, http://www.wwd.com, bferry.wordpress.com  www.stylebistro.com, http://data.whicdn.com



2.8.14

A room to dine in












Heima hjá mér gerast hlutirnir við eldhúsborðið, hvort sem það erum bara við fjölskyldan eða við fáum góða vini í heimskókn. Ef ég er ein heima er ég líklegast við eldhúsborðið í tölvunni. Þegar innrétta á eldhússkrók eða borðstofu finnst mér fallegast (á reyndar einnig við um önnur rými hússins) að blanda saman gömlu og nýju, hafa smá kontrasta t.d. nýtísku stóla við gamalt borð eða öfugt. Það þurfa ekki allir stólarnir að vera eins og það er ekkert verra að hafa þá þægilega.



Everything happens around the kitchen table at my house, whether it's just the family or we have friends over. If I'm home alone you can probably find my there on the computer. When decorating a dining area I think the best results are created when you mix old with new, for example mixing modern chairs with an old table or vice versa. The chairs don't even have to match.



Xx Áróra 


images / elsa.elle.se flickr.com hitta-hem.blogspot.fr diegoenriquefinol.com maison-hand.com