Showing posts with label reykjavik. Show all posts
Showing posts with label reykjavik. Show all posts

6.8.14

Krás - street market






Síðasliðna tvo laugardaga hefur Krás - götumarkaður verið í Fógetagarðinum (við hliðina á Austuvelli) og  auðvitað höfum við ekki látið okkur vanta. Útlandastemmningin svífur þar yfir vötnum.... Krás býður upp á fyrsta flokks street-food, margir af okkar vinsælustu veitingastöðum eru með bás þarna. Aðal vandamálið er að velja hvað maður á að fá sér, hægeldað lambakjöt með jógúrtsósu og harissa í pítubrauði, spicy New Orleans krabbaborgara, dirty pork sandwich, djúpsteiktar hrísgrjónabollur....  Ef þú hefur látið þetta fram hjá þér fara eru enn þrír laugardagar eftir. Sjáumst!



The past two Saturdays we have been at  Krás in downtown Reykjavik . Krás is a street market that offers first-class street food, many of Reykjavik's most popular restaurants have a booth there. The only problem is choosing what to get, slow cooked lamb with yogurt sauce and harissa in pita bread, spicy New Orleans crab-burgers, dirty pork sandwich, fried rice balls .... If you have not been there yet, do not worry, you can still catch it, Krás will be there the next three Saturdays. 



Xx, Áróra



12.1.14

Madison - Reykjavík


English below

Við Áróra kíktum við í Madison Ilmhús í gær. Eitthvað sem við höfðum ætlað að gera síðan það opnaði. Það var ekkert smá gaman að skoða alla fegurðina þarna inni. Allt fullt af fallegum ilmvatnsflöskum, ilmkertum og snyrtivörum. Þarna finnur maður gæðamerki sem ekki fást annars staðar hér á landi og ef þú ert orðin þreytt á að versla þér fjöldaframleidd ilmvötn úr smiðju kvikmyndastjarna og söngkvenna og langar í eitthvað persónulegra þá er Madison verslun sem þú ættir að heimsækja. Við Áróra erum frekar ólíkar þegar kemur að ilmvötnum. Áróra notaði sama ilmvatnið frá Dolce & Gabbana í 15 ár, þar til hætt var að framleiða það og tók sér langan tíma í að leita sér að nýjum ilmi. Hún féll að lokum fyrir klassíker frá Chanel. Ég hinsvegar hef nánast aldrei getað klárað neitt ilmvatn því ég fæ leið á öllu strax og er í eilífri leit að hinum eina sanna ilmi. Eitt ilmvatn hefur komist nálægt því að verða "minn ilmur" og það er Gypsy Water frá Byredo sem fæst einmitt í Madison. Ég tók því á rás að Byredo hillunni um leið og ég kom inn í verslunina og hnusaði af öllum ilmvötnunum. Ég spreyjaði á mig ilminum Seven veils og varð fyrir svipaðri upplifun og þegar ég spreyjaði á mig Gypsy Water í fyrsta sinn og fann bara lykt af gamalli ferðatösku (!) nema hvað Seven veils ilmurinn minnti mig á grænan frostpinna úr æsku. Kannski ekki undarlegt að ég eigi erfitt með að finna mér ilmvatn með svona brenglað lyktarskyn ;) En ég held einmitt að þau ilmvötn sem fást í Madison kalli frekar fram tilfinningar og tengingar við tímabil og upplifanir heldur en bara lykt af sápu, sítrónu, eða vanillu ef þið skiljið hvað ég er að fara... Við Áróra vorum sammála um að næst þegar við þyrftum að kaupa gjöf handa sjálfum okkur, einhverri kynsystur eða sönnum karlmanni, þá væri Madison Ilmhús fyrsta stopp og ef við værum í vafa um hvað hentaði viðkomandi þá eru einnig seld falleg gjafabréf. Þau merki sem má finna í ilmhúsinu eru m.a. Kilian, Nasomatto, Cuirs, Eight & Bob, Clive Christian, Maria Lux og Aesop. Vörurnar eru fallegar (og í dýrari kantinum) og þjónustan góð. Það er líka snyrtistofa á staðnum sem býður upp á hinar ýmsu húðmeðferðir. Það er ekki annað hægt en að mæla með svona fallegu Ilmhúsi og ótrúlega gaman að þessi gersemi sé staðsett í hjarta Reykjavíkur.

Áróra and I went to Madison Ilmhús Perfumery yesterday. Something that we had intended to do since it opened. We were met by a whole lot of beautiful perfume bottles, scented candles, skin products and cosmetics. You can find  luxury brands that are not available elsewhere in Iceland and if you are tired of shopping your mass produced movie star perfumes at the airport and want something more personal, Madison is worth the visit. Áróra and I are rather different when it comes to choosing perfume.  Áróra used the same perfume by Dolce & Gabbana for 15 years, until they stopped producing it and after that she took a long time looking for a new fragrance . Eventually she fell for a Chanel classic. I've almost never been able to finish a whole perfume bottle because I get tired of it right away and therefore I am on an eternal quest for the one true fragrance. Only one perfume has come close to becoming "my scent" and that is Gypsy Water by Byredo which happens to be available at Madison. I marched straight to the Byredo shelf as soon I came into the store and sniffed all of the perfumes. I ended up spraying Seven veils on my wrist and had a similar experience as when I tried on Gypsy Water for the first time, which I thought smelled like an old suitcase (!) Except Seven veils reminded me of a certain green popsicle from my childhood. Perhaps it is not that weird  that I have trouble finding my one true perfume with such a distorted sense of smell ;)  Although I think that Madison's perfumes have that in common that they evoke certain feelings and memories rather than just smell like soap, citrus or vanilla if you know what I mean... Áróra and I agreed that next time we need to buy a gift for ourselves, any female friend or family member, or a real man, then Madison Perfumery would be our first stop. If you are unsure of what would suit the person you can purchase a beautiful gift certificate. The brands that are available at Madison include Kilian, Nasomatto, Cuirs, Eight & Bob, Clive Christian, Maria Lux and Aesop. The products are beautiful (and a little expensive) and the service is good .There is also a beauty salon on site that offers various skin treatments. We can wholeheartedly recommend this beautiful Perfumery that is a treasure located in the heart of Reykjavik.


Xx Eva

Madison Ilmhús, Adalstraeti 9, 101 Reykjavik

11.1.14

In the kitchen - French onion soup


Það er búið að vera ömurlegt veður í dag, kuldi, rigning, snjókoma, rok tala nú ekki um myrkrið. Föstudagur í  janúar ... gæti svo sem verið verra. En það kom mér skemmtilega á óvart þegar maðurinn minn sagði mér að hann ætlaði að elda (gerist eiginlega aldrei:-).  Þetta var í fyrsta skiptið sem hann (við) elduðum franska lauksúpu, dásamleg alveg, mæli með því að þú prófir...



4 laukar (þrír   hvítir og einn rauður) skornir í sneiðar og steiktir í potti uppúr 40 gr. af smjöri og slatta af  ólífuolíu við lágan hita. Eftir 20 - 30 mínútur er 1 msk. af sykri stráð yfir og laukurinn brúnaður. 1 msk af balsamic ediki hellt yfir.  2 - 3  smátt skornum hvítlaukrifjum bætt í pottinn, látið malla í nokkrar mínútur. 1 msk. af hveiti stráð yfir og 1 og 1/2 L af vatni hellt yfir ásamt nautakjötskrafti ( vel af honum). Við notuðum bæði oskar nautakraft og fljótandi nautakraft frá Tasy. Látið sjóða við vægan hita í minnst 1 klukkustund. Skerið baguette í sneiðar og smyrjið með smjöri og grillið inní ofni, raðið í súpupottinn eða í eldfastar skálar og rifið Ísbúa eða annan góðan ost yfir. Setjið undir grillið þar til osturinn er bráðnaður! Berið strax fram :-)




It's been so cold and windy today, It rained and snowed not to mention the darkness. A Friday in January... Well it could be worse. But I was still pleasantly surprised when my husband told me that he was going to cook dinner (it almost newer happens:-) It was the first time he (we) made French onion soup, so wonderful,  I recommend you to try it ...




4 onions (three white and one red) cut into slices and fried in a pan with 40 gr. of butter and some olive oil at a low temperature. After 20 - 30 minutes sprinkle 1 tablespoon of sugar over the onion then add 1 tablespoon of balsamic vinegar and a tablespoon of flouer, 1 1/2 L of water and a generous amount of beef bouillon. Let it simmer at a low heat for at least an hour. Cut a  baguette into slices and put some butter on it, put it under the grill in the oven, put the bread in the soup pot (or individual bowls) top with with cheese and put it under the grill until the cheese melts. Serve immediately:-)



Bon appetit
Áróra

2.1.14

In the kitchen - Last day of the year










Ég hef haft það fyrir sið á gamlárskvöld að prófa að elda eitthvað sem ég hef ekki eldað áður. Eva og Daníella dóttir hennar komu til okkar og eyddu kvöldinu með okkur :-) 
Í forrétt, gamlárskvöld 2013 hafði ég humar sem ég  steikti (í skelinni) uppúr smjöri og fullt af hvítlauk, saltaði og pipraði og  bar fram með klettasalati og baguette (reyndar hef ég oft eldað humar áður). Það var aðalrétturinn sem var tilraunaréttur, Boeuf Bourguignon! Ég hef ætlað mér að prófa þennan rétt í langan tíma. Reyndar hélt ég að þetta væri aðeins meira mál en reyndist vera, en ég mæli með þessum rétti, dásamlegur alveg! Ég fór eftir uppskrift eftir Juliu Child auðvitað:-) sem hægt er að nálgast hér.Kartöflurnar sem ég gerði með voru alveg ágætar en uppskriftin af þeim er í nýjasta Gestgjafanum. Eftirétturinn gat ekki verið einfaldari, vanilluís með heitri rolo sósu, keypti tilbúinn vanilluís, en í rolosósuna fór einn peli rjómi og 3 pakkar af rolo brædd saman í potti. Gleðilegt ár !


I always try to cook something new on New Years Eve. My fellow blogger Eva and her daughter Daniella came over and spent the evening with us :-)  The starter we had for this New Years Eve 2013 was pan fried lobster (langoustine) with lots of garlic, salt and pepper, served with arugula and baguette.  For main course we had Boeuf Bourguignon! I have been planning to make it for some time now and it was much easier to make then I had thought. I sure can recommend this dish. Of course I followed Julia's child recipe for the Boeuf Bourguignon and served it with potatoes, you'll find the recipe below:-) For dessert we had vanilla ice cream with hot Rolo sauce. Happy New Year !



Xx Áróra

Kartöflur soðnar í smjöri uppskrift úr nýjasta Gestgjafanum

2 - 3 bökunarkartöflur, afhýddar og skornar í 3 cm sneiðar 2 dl smjör 6 dl kjúklingasoð salt ef þarf

Setjið smjörið og kjúklingasðið í pott of látið það bráðna saman. Setjið kartöflurnar úr í og sjóðið þær í blöndunni án pottloks. Látið sjóða niður og kartöflurnar brúnast á hliðinni sem snýr niður. 


27.10.13

K Bar



Ég var mjög spennt að fara út að borða á K bar sem er nýr veitingastaður við Laugaveginn. Það eina sem ég vissu um staðinn var að það ætti að bjóða uppá Korean street food með Kaliforníu ívafi, sem hljómaði mjög vel í mín eyru. Sem mikill aðdáandi Masterchef  kom það mér skemmtilega á óvart að sjá sigurvegara íslenska Masterchef í eldhúsinu eins og það væri ekki nóg, þá var skeggjaði dómarinn þar líka. Við fengum æðislegan kokteil sem var borinn fram í gamaldags tekönnu. Við vorum fjögur saman og pöntuðum okkur 4 forrétti sem við deildum, þeir voru hver öðrum betri en dumplings og linkrabbinn stóðu uppúr! Í aðalrétt fékk ég nautasteik með kryddsmjöri og dásamlegum kartöflum en uppskriftin  af þeim kemur frá   ömmu Kathy sem er frá Kaliforniu og á ættir sínar að rekja til Kóreu en hún er einn af eigendum staðarins. Ég get ekki beðið að koma aftur og smakka á fleiri réttum. 




I had been very excited to try out the new K bar restaurant in downtown. The only thing I new about the place before I went there, was that it served Korean street food with a Californian twist, which sounded so good. As a big fan of Masterchef I was pleasantly surprised to see the winner of the Icelandic Masterchef in the kitchen as if that wasn't enough, one of the judges was there also.We had this delicious cocktail to start with. We were four people there together and  ordered appetizers that we shared, all of them where amazing  but I liked the dumplings and the soft crab the best. I can't wait to go back and taste more of this delicious food.


Xx Áróra

K-bar, Laugavegur 74, 101 Reykjavík, tel: +354 5716666



22.3.13

Moroccan style


I've always been fascinated by Moroccan style - There is something so adventurous and foreign about it . I really like it when people mix a little Moroccan to there modern homes:-) You can add a little Moroccan touch to your home with rugs, lamps, silver trays, cushions,blankets...

Xx Áróra

images / pinterest.com vosgesparis.blogspot.com 

19.3.13

Curtains for ...




I think it is so beautiful to use curtains for kitchen cabinets, especially when it's tastefully done as the images above shows:-) What do you think ? 

Xx Áróra


images disertoinspier.net minuccia.net batixa.tumblr.com

2.9.12

Late summer

 
 
After a very busy week nothing much was left in my fridge. Still a little tired and alone in the house this morning, I made this simple warm salad out of half an avocado, 3 handfuls of spinach a few plum tomatoes and goat cheese. All put in a heated pan with a little olive oil, stir for a few minutes. Sea salt to taste. Enjoyed with the ocean view (yes it's there in the back ;)). It's only days before nature changes into fall colors.
Xx Eva

20.8.12

Knitted house

© Dusty
Culture night is always fun and inspiring. This time we went to Reykjavik Art Museum where a knitted house was exhibited. The museum guests were  invited to knit and the pieces that were knitted became a part of the house. You could also make a drawing of  your own house and put it up right there on the museum wall. Adam really enjoyed this and put a lot of work into his drawing. Really a nice exhibition for the whole family.
Xx Áróra.