28.8.13

The "KY style" eye




Stjörnu-stílistinn Kate Young sýnir okkur í þessu myndbandi flotta leið til að nota eyeliner. Reyndar er þetta aðeins erfiðara en það lítur út fyrir að vera (eða ég svona mikill klaufi) en æfingin skapar meistarann!

Celebrity-stylist Kate Young shows us in this video, a cool way to use an eyeliner. It is not as easy as it seems (or maybe I'm just clumsy) but practice makes perfect!


Xx Áróra

video: inthegloss.com



Highstreet pieces $

Highstreet pieces

Ég kíkti á vefsíður hjá ódýru búðunum og valdi nokkra hluti sem ég væri til í að fjárfesta í án þess að fara á hausinn. Vonandi verður boðið upp á þessa hluti í búðunum hér á Íslandi. Ég veit að leðurpilsið er til í Zöru núna :-)

I picked out these pieces from the high street web shops.The prices are not too bad :-) I love the Zara leather skirt, it's available in Iceland now. 

Hat/Lindex
Boots/Zara
Skirt/Zara (TRF)
Cardigan/Selected femme
Disco top/Vero Moda

Xx Eva


26.8.13

Going on vacation alone


Ég fór í viku sólarlandaferð í sumar, nánar tiltekið til Spánar. Alein. Fólk horfir á mig með undrunaraugum og trúir mér ekki þegar ég segi frá þessu. Það heldur að þegar ég segi "alein", þá sé ég að meina eitthvað annað. Ástæðan fyrir því að ég fór á sólarströnd var til að fá algjöra hvíld. Ég fór ein af því mig langaði til þess. Ég var ekki hrædd. Það var fullt af fólki í kringum mig allan tímann, aðallega smábörn og eldri borgarar sem gerðu ekki flugu mein. Ég var ekki einmana. Eins og ég segi þá var fullt af fólki í kringum mig, en það góða var að ég þurfti ekki að sinna því :) Mér leiddist ekki. Ég hafði nóg að gera við að slaka á. Þetta var algjörlega frábært frí. Ég svaf út, fékk mér morgunmat á hótelinu og tók mér góðan tíma. Lét steikja handa mér egg og beikon, borðaði brauð og ferska ávexti og drakk cava með. Eftir morgunmatinn rölti ég út í hótelgarðinn og tók þátt í líkamsrækt dagsins, sem var annaðhvort zumba eða eróbik, með hinum hótelgestunum. Eftir smá puð skellti ég mér í bikiní og fór með bækurnar mínar og sólarvörn númer 50 að sundlaugarbakkanum, fann mér bekk á góðum stað og lá þar og dormaði í nokkra tíma. Meðan sólin var sem hæst á lofti fór ég í göngutúra meðfram ströndinni, skoðaði í búðir eða verslaði eitthvað létt í matinn. Svo lagðist ég bara aftur á bekkinn annaðhvort við sundlaugina eða á ströndinni, sleikti sólina, las og skoðaði blöð þar til komið var kvöld. Þá var kominn tími á að sjæna sig aðeins fyrir kvöldmatinn. Ég sat lengi og borðaði alls kyns fisk, sjávarrétti, ferskt grænmeti, osta og ávexti og fylgdist með dramatískum og háværum spænskum stórfjölskyldum. Þetta (ekkert) gerði ég í sjö daga og kom úthvíld og endurnærð heim til mín. Ég get ekki annað en mælt með þessu og vona að ég hafi tækifæri til að gera þetta aftur. - Helst á hverju ári :)


I went on a vacation this summer to the South of Spain. By myself. People look at me funny when I tell them this, because when I say that I went there "alone" they think that means something else. The reason that I picked a beach vacation was to get a good rest. I went by myself because I wanted to. I wasn't afraid. There were plenty of people around me, most of them children and senior citizens who are quite harmless. I wasn't lonely, as I said there were plenty of people around me but I didn't have to take care of any of them :) I wasn't bored. I was busy relaxing. I slept in, had breakfast at the hotel, where I took my time to eat a big meal including bacon and eggs and always a glass of cava. After breakfast I went out to the hotel garden and did the work-out of the day (which was either zumba or aerobics) with other hotel guests. After that I changed into a bikini, picked up my books and sunscreen and lay in the sun for a few hours, dipping in the pool when too hot. During the hottest time of the day I took a stroll on the beach or did some shopping. I lay in the sun again til early evening when it was time to change and go to dinner. I sat for a long time, eating a lot of fresh seafood, locally grown vegetables, fruit and cheese and while at it I did some people watching - Spanish families are loud, passionate and dramatic with adorable kids :) This (nothing) is what I did for seven days. I came home relaxed, refreshed and tanned. I hope I 'll have the chance to do this again someday. 
- In fact I'd want to do this every year :) 

Xx Eva

Image: fancy.com

Moving closer to winter

Biker boots fur hat coat style winter



xx Eva




Image: whowhatwer.com






24.8.13

Manger by Mimi Thorisson



Hin gullfallega  Mimi Thorisson býr í Médoc, Frakklandi með íslenskum eiginmanni sínum 3 börnum, 2 stjúpbörnum og 14 hundum! Mimi heldur úti matarblogginu Manger sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Oddur maðurinn hennar er ljósmyndari og tekur þessar fallegu myndir sem dekra við augað. Mimi skrifar um mat og lífið í Médoc af miklilli ástríðu og deilir uppskriftum með lesendum. Maturinn er ferskur, oftast franskur og alltaf girnilegur. Maður fær að gægjast aðeins inn í ævintýralegt líf Mimi og fjölskyldu þar sem sveitarómantík og kosmópólitísk fágun bráðna saman. Það verður gaman fylgjast með henni í framtíðinni. Ég spái henni heimsfrægð.... :-) 


The gorgeous Mimi Thorisson lives in Médoc, France with her Icelandic husband, three children, two stepchildren and 14 dogs! Mimi manages the food blog Manger which is one of our favorites. Her husband Oddur is a photographer and he takes these beautiful photographs for the blog. Mimi writes about food and life in Médoc with great passion and shares recipes with her readers. The mostly French food and always fresh ingredients are truly appetizing. You get a glimpse of Mimi's life, where idyllic countryside and cosmopolitan sophistication melt so perfectly together, you just can't help but let out a little sigh of admiration.  I am looking forward to see what she does in the future :-)  



XX Áróra

all images: www.mimithorisson.com



22.8.13

Rain over me

Rain

Raincoat/Ilse Jacobsen // Hat/Steinunn

Það er alveg fáránlegt hvað ég er léleg að klæða mig í rigningunni. Ég á milljón jakka, kápur og úlpur en ekkert af þessu er vatnshelt. Mig langar í einhverja rosalega einfalda regnkápu sem er hægt að skella yfir hvaða outfit sem er og til að poppa hana aðeins upp væri upplagt að setja á sig höfuðfat í stíl við það sem Susie Lau er með á myndinni. Gallinn við regnkápur er oft sá (fyrir utan að þær eru yfirleitt forljótar) að þær eru úr gúmmíi sem andar ekki þannig að það er bara hægt að vera í þeim í þrjár mínútur. Ég er smá forvitin að prófa þennan hatt frá Steinunni, það er hægt að hafa hann á röngunni líka.

I'm really bad at dressing for the rain. I own a million coats, jackets and blazers but none of them are water repellent. I would go for a really simple, classic long raincoat that you can wear with all outfits and maybe add a little quirky hat like Susie Lau in the picture. The problem with raincoats is (aside that most are hideous) that they don't breath and therefore you can only wear them for three minutes. I'm gonna try on that hat by Steinunn when I have the chance. It can also been worn inside out.

Xx Eva 

 Image: www.stylebubble.co.uk



21.8.13

Home inspiration - Indoor swing



Ég væri alveg til í rólu í eldhúsið mitt....

I would love to have a swing in my kitchen...


Xx Áróra

images pinterest.com theselby.com

20.8.13

Keffiyeh clothes




Föt úr Keffiyeh klútum eða arabaklútum hafa verið að birtast hér og þar undanfarið. Cool að sjá þetta efni í fatnaði fyrir konur og í alls konar litum, þar sem þessir klútar eru vanalega bornir af karlmönnum í arabalöndum. Þetta er líka ótrúlega mjúkt og kósý efni. Er alveg til í eina svona flík :)

Keffiyeh Arab scarfs have been crawling out of the woodwork lately - not only as scarfs but clothes made out of them. It's kind of cool that this fabric is now being used for feminine clothes in different colors as the Keffiyeh is usually worn by Arab men. The fabric is soft and cosy - I'm in on this one :)

Xx Eva

From top:
Dresses square format: Aftur
Dresses regular format: Aftur
Red cashmere shawl: Muzungu sisters
Black cashmere shawl: Muzungu sisters
Grey top and shorts : Cecilie JØrgensen
B/w top and shorts: Cecilile JØrgensen

Images from top: Aftur facebook account, Aftur facebook account, muzungusisters.com, muzungusisters.com, Thora Valdimarsdóttir, lookdepernille.com, mielmonmiel.anywho.dk


9.8.13

Loft in Brooklyn, New York










Brooklyn, New York , hátt til lofts, vítt til veggja, stórir iðnaðar gluggar ég gæti ekki beðið um meira! Ég gæti flutt inn strax í dag:) 

Brooklyn, New York, spacious, large industrial windows... could not ask for more. I could move in today:-)


Xx Áróra

8.8.13

Black Bermuda shorts



Svona buxur væri ég til í! Það er greinilega hægt að vera í þeim við allt, við öll tækifæri og með og án sokkabuxna og allir skór í skóskápnum leyfilegir. Þetta er snilldarflík!

I'm into black bermudas! Clearly you can wear them with anything, to any occasion, with or without tights and all types of footwear is allowed. This is a brilliant garment!

Xx Eva

Images from top: Adelina Alexander blog, Adelina Alexander blog, stopitrightnow.com, 9pr.com, blueisinfashionthisyear, acupofjo, lookdepernille.com, stopitrightnow.com

5.8.13

Obsession with motherhood around the world





Við og við heimsæki ég 'A cup of Jo' þar sem Joanna Goddard, tveggja barna móðir og New York búi, heldur úti lífsstílsbloggi. Mæður og uppeldi er henni hugleikið, eitthvað sem ég hef takmarkaðan áhuga á í það minnsta þegar umræðan snýst um 'bleiur og brjóstagjöf'. Dóttir mín er orðin 17 ára og það að vera foreldri unglings er tvennt ólíkt. Joanna átti barn númer tvö fyrir stuttu og henni datt í hug að fá bandarískar konur sem búa í öðrum löndum og ala upp börnin sín þar, til að deila reynslu sinni. Mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegir pistlar. Þeir segja svo margt um menningu og stjórnarfar þessara landa og svo er gaman að það séu útlendingar sem eru að lýsa aðstæðum, því glöggt er gests augað. Nýjasti pistillinn fjallar um uppeldi á Norður- Írlandi. Það væri gaman ef einhver skrifaði um litla Ísland. :)


Once in a while I visit the lifestyle blog, 'A cup of Jo' by Joanna Goddard who is a mother of two and a savvy New Yorker. Motherhood and parenting are hot topics on her blog, something that I don't care that greatly about, at least not when the discussion revolves around 'diapers and breastfeeding'. I have a 17 year old daughter and being a parent to a teenager is a totally different ballgame. Joanna had her second son a short while ago and she got the idea to have American women that live around the world share their experiences and the differences on raising children abroad. I love these articles and I like the fact that she didn't get local women to share because a guests eye is usually sharper. You learn a few things about the culture and politics of the different countries. The latest post is about motherhood in Northern Ireland. It would be fun to read about Iceland in these series.



Xx Eva

All images: A CUP OF JO

1.8.13

Are you ready? - Over the knee boots


Á maður að búa sig undir að ganga í vöðlum í vetur? Ég hef alltaf haldið að það væru bara tveggja metra háar franskar konur sem gætu púllað þetta lúkk almennilega en kannski hef ég rangt fyrir mér (kannski ekki?). Stígvélin á neðslu myndinni eru úr haustlínu Isabel Marant Etoile og aðallínan býður einnig upp á mjög flott há stígvél. Kannski maður skelli sér?

Are you ready to rock thigh high boots? I've always thought you had to be 2 meters tall and French to be able to pull them of, but maybe I'm wrong (...or maybe I'm right?). Isabel Marant Etoile is re-introducing them this fall and the main line has some pretty fierce tall boots also. I'm voting 'maybe' for this trend.

Xx Eva 

Images: All the pretty birds, Garance Doré, stylebykling, Jeanne Damas, Pinterest.